I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me. It's easy.
Upplýsingatækni F-TÖLN1TUstór1(Stór1_ÍSAL4) Tölvunotkun 2026H Stóriðjuskólinn – Kennsluáætlun
Kennari: Jóhanna Geirsdóttir
Áfangalýsing
Markmið námsþáttarins er að auka færni nemenda í markvissri, öruggri og ábyrgri notkun upplýsingatækni í námi og starfi.
Fjallað er um notkun fjölbreyttra forrita og veflausna fyrir ritvinnslu, töflureikna, kynningar, mynd- og skjávinnslu, vafra, skýjaþjónustu, gagnageymslu og samvinnuverkfæri. Þá er lögð sérstök áhersla á siðferðisleg álitamál og persónuvernd, grunnöryggi og aðgengi,
auk gagnlegrar nýtingar opins hugbúnaðar og gervigreindar.
Námsmarkmið
Nemi skal hafa öðlast leikni í að:
-
Setja upp gögn í hinum ýmsu forritum svo sem í ritgerðarvinnslu, gögn og línurit í töflureikni sem og útbúa kynningar og skjámyndir
-
Nota skýja- og samvinnutól við sameiginlega vinnu
-
Beita góðri netöryggis- og persónuverndarvenju
-
Leita markvisst að traustum upplýsingum á netinu og meta og vísa í réttar heimildir
-
Nota opinn hugbúnað til að setja upp kynningar
-
Nota gervigreindarlausnir á ábyrgan hátt
Nemi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
Sjálfstætt tileinka sér ný forrit, viðbætur og gervigreindarlausnir
-
Sýna sjálfstæði og frumkvæði í notkun ólíkra forrita til samsetningar efnis
-
Meta siðferðilegar og öryggistengdar afleiðingar upplýsingatækninotkunar
Námsmat
-
Áhersla er lögð á símat og leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni námsmanna
Námsgögn
Kennslubók: Microsoft 365 eftir Jóhönnu Geirsdóttur
