top of page

Google

​​​​​​Hvernig á að búa til gott lykilorð?
Margir hugsa ekkert út í lykilorðið sitt og ótrúlega stór hópur fólks er einfaldlega með 123456 sem lykilorð. 
​Lykilorð vernda oft persónuupplýsingar þínar og varna því að einhver geti notað þína miðla til að þykjast vera þú.

Upplýsingatækni/Gmail  ​Wikibækur 

  • Nýr notandi að Gmail

  • Stillingar

  • Tengiliðir

  • Leitarmöguleikar

  • Verkefnalisti

  • Notkunarmöguleikar í námi og kennslu

Google Drive er samstarfsforrit í skýi til að efla samvinnu
Geymsla, deiling og samvinna í skrám og möppum úr snjalltækjum, spjaldtölvum o.fl.
Þægilegt er að nota Drive með skjölum, töflureiknum og skyggnum, forritum í skýinu sem gera teymi
notanda kleift að eiga gott samstarf í rauntíma. Hægt er að búa til og deila efni með teymi frá fyrsta degi án þess að þurfa að flytja sig úr eldri verkfærum.
​Hægt er að samþætta Drive við fyrirliggjandi búnað teymisins til að gera hann enn betri.
Hægt er að vinna saman að Microsoft Office-skrám án þess að þurfa að umbreyta skráarsniðum og breyta og vista fleiri en 100 skráargerðir til viðbótar, þar á meðal PDFskrár, myndir og fleira.

​Google Docs (ritvinnsluforrit), Google Sheets (töflureiknir) og Google Slides (glæruforrit) eru ókeypis skrifstofuhugbúnaður með vefviðmót frá Google.

Hægt er að búa til skjöl, deila þeim með öðrum notendum og breyta þeim í samvinnu.
Öll skjöl sem búin eru til í Google Docs eru sjálfvirkt vistuð í
Google Drive
Google Docs er aðgengilegt sem vefforrit og sem smáforrit fyrir Chrome og Android þar sem hægt er að stofna og breyta skjölum án tengingar við netið.  
Google Forms er forrit til að búa til rafrænar kannanir
Google Sites er heimasíðuforritið í Google 
Google Dravings er teikniforrit í Google  
Google Meet (myndfundir) er gríðarlega öflugt tæki til að halda fundi/kennslustundir í gegnum netið.  

Raddinnsláttur með Google  (myndskeið – Ólafur Kristjánsson)

bottom of page