Office 365 - Verkefni
  • johanna.is
  • 2 0 2 2
  • 2019
Að afrita texta af netinu í Word-skjal:  Afritið textann (Copy) af netinu og límið inn í Word-skjal með því að ýta á örina niður við Paste og velja Keep Text Only ​
​

Vefverkefni 1​​

​Opnið skjalið 01-vefverkefni og vistið á ykkar tölvu. ​Skrifið nafnið ykkar fremst í skjalið. ​
Vinnið samkvæmt fyrirmælum hér að neðan.   –  
Sýnishorn  (Þið ráðið hvaða myndir þið veljið).​

Picture
A
  1. Búið til mynd í Avatarmaker – Myndskeið  (1:43 mín.)
  2. Sækið einhverja mynd af myndasíðunni Clker – Myndskeið  (1:30 mín.)
  3. Búið til textamynd í WordArt.com – Myndskeið  (3:46 mín.)
  4. Búið til lista í Microstock Keyword Tool (10–15 orð) og afritið inn í WordArt.com Leitarorð: Computer – Myndskeið  (5:00 mín.)
​Afririð myndirnar inn í skjalið 01-vefverkefni.
B
Farið á vef Hagstofu Íslands: Nafnaleit og finnið út hve margir eru skráðir með ​nafninu ykkar í þjóðskrá.​​Ef þið heitið tveimur nöfnum, skoðið þá annað í einu – síðan bæði. –  Myndskeið  (2:01 mín.)
  • ​​Nafnaleitin gefur upplýsingar um hversu margir eru skráðir með einstök nöfn í þjóðskrá.Hægt er að leita að einu nafni (t.d. Guðrún eða Jón) eða tveimur nöfnum (t.d. Guðrún Anna eða Jón Sigurður).
​​​Setjið upplýsingarnar inn í skjalið 01-vefverkefni.
C
​​Farið á Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og finnið 2–3 nýyrði (eigið val) og afritið merkinguna í skjalið 01-vefverkefni. –  Myndskeið  (1:29 mín.)
D
    1.  Farið inn á leitir.is og leitið að bókinni
         Sykur eftir Katrínu Júlíusdóttur
Á hvaða bókasöfnum er bókin til og hve langur er lánstíminn? Afritið í skjalið 01-vefverkefni.  Myndskeið  (4:05 mín.)
    2.  Farið inn á 
Wikipedia  Leitið að grein um Matarprjóna
Afritið upplýsingarnar í Word-skjalið
Windows-umhverfið – Upplýsingatæknibyltingar – Möppur – Myndvinnsla – ​Leit á netinu – Hagnýtar vefsíður –Samfélagsmiðlar – ​​Upplýsingalæsi – ​​​Höfundaréttur – Siðfræði og siðferði á netinu – Skráning heimilda og framsetning – ​Persónuvernd – Stafræn borgaravitund (SAFT)     ​Netið og vafrar – ​Gervigreind      ​Stefna Íslands um gervigreind
Heimasíða Jóhönnu Geirsdóttur 
kennara í upplýsingatækni og tölvunotkun

Netfang: johanna@johanna.is
Uppfært  16. febrúar 2023
  • johanna.is
  • 2 0 2 2
  • 2019