top of page

Vefverkefni

Skoðið vefina hér fyrir neðan.

Farið inn á nokkra þeirra og finnið þær upplýsingar sem beðið er um.

Afritið upplýsingarnar í Word-skjal og vistið undir heitinu vefverkefni.
Þið getið líka notað SnippingTool til að klippa út upplýsingar ef þið getið ekki afritað texta.

Að afrita texta af netinu í Word-skjal: 
​Afritið textann (Copy) af netinu og límið inn í Word-skjalið með því að ýta á örina niður við Paste og  velja Keep Text Only 

​Snipping Tool (Leiðbeiningar í pdf-skjali) er hentugt verkfæri til að vinna með ef klippa þarf afmarkað svæði, t.d. hluta af mynd, skjali eða skjá og skeyta inn í annað skjal. Hægt er að klippa hluta af skjá – eða jafnvel taka mynd af öllum skjánum.
Síðan er hægt að líma (Paste) myndina inn í önnur forrit.
Try Snip & Sketch​ ​– Snip & Sketch tekur við af Snipping Tool.
Windows-hnappurinn+Shift+S  tekur skjáskot – Myndin geymist á klemmuspjaldinu.

A

Farið á vef Hagstofu Íslands – Nafnaleit 

  • Finnið út hve margir eru skráðir með nafninu ykkar í þjóðskrá.

  • ​Ef þið heitið tveimur nöfnum, skoðið þá annað í einu – síðan bæði. 

Afritið í Word-skjalið.

​​Myndskeið sem sýnir hvernig þið eigið að vinna lið A

B

​Farið á Vísindavefinn og finnið svör við:

  • Hvers konar tölvunarfræði er að baki rafrænu myntinni bitcoin?

  • Hvernig nýyrði eru tekin inn í tungumálið?

Afritið í Word-skjalið.

C

Farið á vef Hagstofu Íslands – Verðlagsreiknivél

  • Sláið inn upphæð að eigin vali og athugið hve há.sú upphæð er nú.
    Dæmi: 100.000 í janúar 2020.
    Hver er verðlagsbreytingin milli ára?

​Afritið í Word-skjalið.

D

Farið á vef Seðlabanka Íslands – Gengi

  • Finnið sölugengi evrunnar 5. janúar 2001.

  • ​Finnið sölugengi evrunnar í dag.

Afritið í Word-skjalið.

E

Farið inn á​ leitir.is og leitið t.d. að eftirfarandi bókum/myndefni:

  • Sæluríkið eða Petsamo eftir Arnald Indriðason​

  • Djöflaeyjan (myndefni)

  • Sóleyjarkvæði (hljóðbók)

​Á hvaða bókasöfnum er þetta efni til?
Afritið staðsetningu gagna í Word-skjalið.

F

Farið inn á Almanak Háskólans  
​Dagsetningar á næstu árum

  • Á hvaða mánaðardegi er uppstigningardagur árið 2026?

  • ​Á hvaða vikudegi er 1. maí árið 20257?

  • Á hvaða vikudegi er aðfangadagur 2028?

Afritið í Word-skjalið.

G

Farið á vef Hagstofu Íslands – Mannfjöldi

  • Hver var mannfjöldi á Íslandi í lok 2. ársfjórðungs 2026?

Afritið í Word-skjalið.

H

Farið á einhvern uppskriftarvef (t.d. gottimatinn.is) ​
​og finnið uppskrift að eigin vali.  Afritið í Word-skjalið.

​Afritið í Word-skjalið.

I

Farið á síðuna The World Clock – Time Zones
Hvað er klukkan núna í:

  • Tokyo?

  • New York?

  • London?

Afritið í Word-skjalið.

J

Farið á veðursíðu yr.no
Hvernig er veðrið í eftirfarandi borgum?

  • París

  • Tenerife Sur

  • Los Angeles

Afritið í Word-skjalið.

K

Farið á síðuna greynir.is

Sláið inn spurningu (eigið val) um mannanöfn, titla, starfsheiti eða sérnöfn. ​–

Leitarvél Greynis byggir á umfjöllunarefnum (þemum) frekar en bókstaflegum leitarorðum.
Fólk  Hvaða fólk kemur oftast fyrir í fréttum vefmiðla?
Orð – Orðtíðni í fréttum vefmiðla. – Sláið inn eitt eða fleiri orð aðgreind með kommu.Veljið síðan tímabil.
​Dæmi: Eldgos, sviðsmynd
Málgreining – Sláið inn texta og smellið á Greina.– Smellið síðan á málsgreinina til að sjá trjágreiningu hennar.
​Dæmi um spurningar:  Hver er forseti Finnlands? –  Hvað er UNESCO? – Hver er Katrín Jakobsdóttir?  

Afritið í Word-skjalið.​

bottom of page