top of page

Vefverkefni

Skoðið vefina hér fyrir neðan.

Farið inn á nokkra þeirra og finnið þær upplýsingar sem beðið er um.

Afritið upplýsingarnar í Word-skjal og vistið undir heitinu vefverkefni.
Þið getið líka notað SnippingTool til að klippa út upplýsingar ef þið getið ekki afritað texta.

Að afrita texta af netinu í Word-skjal: 
​Afritið textann (Copy) af netinu og límið inn í Word-skjalið með því að ýta á örina niður við Paste og  velja Keep Text Only 

​Snipping Tool (Leiðbeiningar í pdf-skjali) er hentugt verkfæri til að vinna með ef klippa þarf afmarkað svæði, t.d. hluta af mynd, skjali eða skjá og skeyta inn í annað skjal. Hægt er að klippa hluta af skjá – eða jafnvel taka mynd af öllum skjánum.
Síðan er hægt að líma (Paste) myndina inn í önnur forrit.
Try Snip & Sketch​ ​–
Snip & Sketch tekur við af Snipping Tool.
Windows-hnappurinn+Shift+S  tekur skjáskot – Myndin geymist á klemmuspjaldinu.

A

Farið á vef Hagstofu Íslands – Nafnaleit 

  • Finnið út hve margir eru skráðir með nafninu ykkar í þjóðskrá.

  • ​Ef þið heitið tveimur nöfnum, skoðið þá annað í einu – síðan bæði. 

Afritið í Word-skjalið.

​​Myndskeið sem sýnir hvernig þið eigið að vinna lið A

B

​Farið á vef Árnastofnunar 
Nöfn Íslendinga

  • Finnið upplýsingar um nafnið ykkar

Afritið í Word-skjalið.

C

Farið á vef Hagstofu Íslands – Verðlagsreiknivél

  • Sláið inn upphæð að eigin vali og athugið hve há.sú upphæð er nú.
    Dæmi: 100.000 í janúar 2020.
    Hver er verðlagsbreytingin milli ára?

​Afritið í Word-skjalið.

D

Farið á vef Seðlabanka Íslands – Gengi

  • Finnið sölugengi evrunnar 5. janúar 2001.

  • ​Finnið sölugengi evrunnar í dag.

Afritið í Word-skjalið.

E

Farið inn á​ leitir.is og leitið t.d. að eftirfarandi bókum/myndefni:

  • Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur (bók) eða 

  • Reykjavík glæpasaga eftir Katrínu Jakobsdóttur
    og Ragnar Jónasson (bók)

  • Djöflaeyjan (myndefni)

  • Sóleyjarkvæði (hljóðbók)

​Á hvaða bókasöfnum er þetta efni til?
Afritið staðsetningu gagna í Word-skjalið.

F​

Farið inn á vefinn dagarnir.is  
​Dagsetningar á næstu árum

  • Á hvaða mánaðardegi er uppstigningardagur árið 2027?

  • ​Á hvaða vikudegi er 1. maí árið 2027?

  • Á hvaða vikudegi er aðfangadagur 2027?

Afritið í Word-skjalið.

G

Farið á vef Hagstofu Íslands – Mannfjöldi

  • Hver var mannfjöldi á Íslandi í lok 3. ársfjórðungs 2026?

Afritið í Word-skjalið.

H

​Farið á Vísindavefinn og finnið svör við:

  • Hver er eðlisfræðingurinn Francis Halzen og fyrir hvað fékk hann Nóbelsverðlaun árið 2026?

  • ​​Hvernig nýyrði eru tekin inn í tungumálið?

Afritið í Word-skjalið.

I

Farið á síðuna The World Clock – Time Zones
Hvað er klukkan núna í:

  • Kaupmannahöfn?

  • Tenerife?

  • Tókíó?

Afritið í Word-skjalið.

J

Farið á einhvern uppskriftarvef (t.d. gulur, rauður, grænn og salt ) ​
​og finnið uppskrift að eigin vali.  Afritið í Word-skjalið.

​Afritið í Word-skjalið.

K

Farið á síðuna greynir.is

​Sláið inn spurningu (eigið val) um mannanöfn, titla, starfsheiti eða sérnöfn. 

  • Leitarvél Greynis byggir á umfjöllunarefnum (þemum) frekar en bókstaflegum leitarorðum.​

Fólk Hvaða fólk kemur oftast fyrir í fréttum vefmiðla?

Orð – Orðtíðni í fréttum vefmiðla. – Sláið inn eitt eða fleiri orð aðgreind með kommu.
Veljið síðan tímabil.
​Dæmi: Eldgos, sviðsmynd
Málgreining – Sláið inn texta og smellið á Greina.
Smellið síðan á málsgreinina til að sjá trjágreiningu hennar.
​Dæmi um spurningar:  Hver er forseti Finnlands? –  Hvað er UNESCO? – Hver er Katrín Jakobsdóttir?  

Afritið í Word-skjalið.​

L

Farið á veðursíðu yr.no​
Hvernig er veðrið í eftirfarandi borgum?

  • París

  • Tenerife Sur

  • Los Angeles

Afritið í Word-skjalið.​

bottom of page